
Nú hef ég talað um hvernig á að stofna og setja upp vefsíðu í sjö skrefum.
Hér ætla ég að rifja þetta allt saman upp í stuttu máli, með linka á hinar greinarnar.
Ef þú hefur áhuga á þessu þá mæli ég með að þú hefjist handa sem fyrst. Að gera allt sem kemur fram í þessum 7 greinum og videoum ætti ekki að taka meira en nokkra klukkutíma.
Í næstu greinum mun ég tala um frían hugbúnað til að mæla heimsóknir á vefsíðuna o.fl, hvernig á að fá traffík, auk þess sem er að sjálfsögðu aðalmálið … að fá tekjur.
Ekki gleyma að helsta markmiðið í upphafi er að fá 100 stöðugar heimsóknir á dag. Þá er eftirleikurinn auðveldur. Mun auðveldara er að komast úr 100 í 1000 heimsóknir á dag, en 0 í 100.
Allir linkar í þessari grein opnast í nýjum flipa.
Ef þú ert ekki búinn að lesa þessa grein þá mæli ég með að þú byrjir á því, þar sem að hún útskýrir töluvert mikið um WordPress: Hvað er wordpress og til hvers að nota það?.
1. Að ákveða viðfangsefni og nafn
Hér tala ég um að ákveða viðfangsefni og nafn fyrir vefsíðuna.
Ég tala um hvernig á að velja viðfangsefni eftir áhuga- og þekkingarsviði og mikilvægi þess að finna lýsandi nafn. Svo tala ég um að finna lén (domain name) með frírri þjónustu á godaddy.com.
2. Að kaupa lén og vefhýsingu
Hér tala ég um að kaupa lén og vefhýsingu, þar sem ég útskýri hvernig á að nota GoDaddy til að vera viss um að ákveðið lén sé laust.
Svo útskýri ég kaup á vefhýsingu hjá Hostgator og sýni nákvæmlega hvernig á að gera það í kennslumyndbandi þar sem ég fer í það, skref fyrir skref.
Til að kaupa vefhýsingu þarftu kreditkort eða PayPal aðgang, og ef þú kaupir “Baby Plan” þá kostar u.þ.b. 60 dollara að skrá lénið í eitt ár og vefhýsingu í 6 mánuði.
3. Að installa WordPress
Hér hef ég búið til kennslumyndband um hvernig á að installa WordPress í gegnum stjórnborðið hjá Hostgator sem er mjög einfalt í notkun.
Þetta er sýnt skref fyrir skref og tekur aðeins örfáar mínútur að fara í gegnum allt ferlið.
4. Að installa Theme á vefsíðuna
Hér útskýri ég hvað Theme er og hvernig á að installa því á vefsíðu með WordPress.
Útskýrt er hvernig góð og notendavæn Theme lýsa sér, auk þess hvar hægt er að finna endalaust af flottum Themes sem kosta ekki neitt. Svo sýni ég hvernig á að installa þeim, skref fyrir skref, í myndbandi.
5. Að breyta stillingum í WordPress
Hér tala ég um þær helstu stillingar sem á að breyta í WordPress, þar sem ég fer í hverja einustu stillingu í stjórnborðinu og sýni í stuttu máli í myndbandi hvernig á að breyta þeim.
6. Að installa Plugins
Í þessari grein útskýri ég hvað plugins eru og hvernig á að installa þeim, en plugin eru eins og lítil smáforrit sem hægt er að bæta við vefsíðuna, svolítið eins og apps fyrir farsíma.
Það eru tvö plugins sem ég mæli með að nota í byrjun, en ég sýni í myndbandi, skref fyrir skref, hvernig á að gera það.
7. Að skrifa fyrstu greinina
Hér útskýri ég hvernig á að nota viðmótið í WordPress til að skrifa greinar, sem er auðvitað aðalmálið í þessu öllu saman. Ég tala auk þess stuttlega um hvernig er best að setja upp greinar til að hafa þær læsilegar.
Þetta er allt saman útskýrt stuttlega í kennslumyndbandi, en ég mæli með að þið fiktið í þessu viðmóti til að læra á þetta. Þetta er mjög einfalt í notkun og svipað og önnur ritvinnsluforrit.
Eftir hverju ertu að bíða?
Ég mæli með að þú hefjist handa sem fyrst.
Þetta ferli tekur í mesta lagi nokkra klukkutíma og þá er hægt að snúa sér að næstu skrefum sem eru að skrifa greinar, fá traffík á vefsíðuna, setja inn auglýsingar o.fl. og einbeita sér að því að ná stöðugum 100 heimsóknum á dag (til að byrja með).
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða lendir í minnstu vandræðum við eitthvað, þá mun ég aðstoða þig við það án endurgjalds ef þú sendir mér tölvupóst í kristjan@noboss.is.
Einnig geturðu skilið eftir comment fyrir neðan greinarnar ef það er eitthvað óskýrt.


